Risatilboði Chelsea hafnað - Tekur Nuno við West Ham? - Tveir á blaði United - Ungur miðvörður til Arsenal?
Innkastið - KR niðurlægt og Blikar í svaka brasi
Enski boltinn - Með annan fótinn inn á vinnumálastofnun
Leiðin úr Lengjunni: Til hamingju Þórsarar
Útvarpsþátturinn - Mikil spenna rétt fyrir tvískiptinguna
Turnar Segja Sögur: Svikahrappar & hæfileikasóun
Leiðin úr Lengjunni: Upphitun fyrir lokaumferðina með Jóni Ólafssyni
Hugarburðarbolti EXTRA!
Innkastið - Rafmögnuð lokaumferð í Lengjunni
Útvarpsþátturinn - Skemmdarverk á íþrótt
Uppgjör og lið ársins í 4&5. deild
Leiðin úr Lengjunni: Þróttarar að toppa á réttum tíma og glórulaus ákvörðun hjá Grindavík
Hugarburðarbolti GW 3 Sturlaður loka gluggi í enska !
Enski boltinn - Öflugir Ungverjar, taugahrúgan Amorim og gluggadagur
Innkastið - Besti leikur tímabilsins og allt í járnum á toppnum
Uppbótartíminn - Ræðst allt saman á fimmtudaginn
Útvarpsþátturinn - Lag fyrir Blika og landsliðið strax í úrslitaleik
Turnar Segja Sögur: Danmörk 1992
Innkastið - Stundum hata ég fótbolta
Leiðin úr Lengjunni: Þórsarar stigu stórt skref og barátta um öll sæti
Hugarburðarbolti - Man Utd er í veseni
   þri 13. júní 2023 14:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Enski boltinn - Annað þrennulið sögunnar
Jack Grealish var tilfinningaríkur í leikslok.
Jack Grealish var tilfinningaríkur í leikslok.
Mynd: EPA
Manchester City tryggði sér þrennuna síðastliðið laugardagskvöld með því að leggja Inter frá Ítalíu að velli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

City er núna handhafi ensku úrvalsdeildarinnar, enska bikarsins og Meistaradeildar Evrópu.

Magnús Ingvason og Tómas Hallgrímsson, stuðningsmenn Manchester City, komu við í Thule stúdíóinu í dag og fóru yfir úrslitaleikinn gegn Inter og tímabilið í heild sinni. City er annað enska liðið í sögunni sem vinnur þrennuna en nágrannar þeirra í Manchester United unnu hans fyrst árið 1999.

Þetta er lokaþáttur tímabilsins af Enski boltinn hlaðvarpinu en við stefnum á að byrja aftur stuttu áður en næsta tímabil hefst.

Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni í spilaranum að ofan, í öllum hlaðvarpsveitum eða á Spotify.
Athugasemdir
banner