Martinelli til Sádi? - Brentford neitar að lækka sig - Alonso tilbúinn að selja - Elanga á leið til Newcastle
   fös 04. júlí 2025 09:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jota jarðaður á morgun
Mynd: EPA
Portúgalski fótboltamaðurinn Diogo Jota verður jarðaður á morgun í bænum Gondomar í Portúgal. Athöfnin á að hefjast klukkan 10:00 í fyrramálið.

Það verður bænastund seinni partinn í dag og sjálf útförin verður svo í fyrramálið.

Forseti Portúgals, Marcelo Rebelo de Sousa, hefur boðað komu sína.

Jota og bróðir hans, Andre Silva, létust í hræðilegu bílslysi fyrir rúmum sólarhring síðan, þeir voru saman í bíl og ætluðu með ferju yfir til Englands frá Spáni.

jota var á leið til Liverpool þar sem undirbúningstímabilið fyrir komandi tímabil hefst á mánudag.

Athugasemdir
banner
banner