Magnús Már Einarsson skrifar frá Osló
,,Auðvitað er Ísland betra lið ef þú horfir á töfluna," sagði Daniel Braaten leikmaður norska landsliðsins í dag aðspurður að því hvort liðið sé betra en Ísland.
Þessi lið hafa mæst oft undanfarin ár og þau leiða saman hesta sína á ný í lokaleik í undankeppni HM á þriðjudag. Ísland getur með hagstæðum úrslitum komist í umspil en gott gengi liðsins kemur Braaten ekki á óvart.

,,Nei, við vissum að Ísland er gott lið. Þeir hafa reynda leikmenn og unga leikmenn sem hafa tekið skrefið í stórar deildir í Evrópu."
Norðmönnum hefur ekki gengið vel í undankeppninni og möguleikar liðsins um sæti á HM eru úr sögunni. ,,Við viljum enda undankeppnina með sigri og það er það sem við stefnum á," sagði Braaten um leikinn á þriðjudag.
Braaten spilar með FC Kaupmannahöfn í Danmörku en liðsfélagar hans þar eru Ragnar Sigurðsson og Rúrik Gíslason. Braaten segist ekki ætla að fara í þá á af hörku.
,,Ég verð rólegur því að við þurfum á þeim að halda í Danmörku. Vonandi verð ég á hinum kantinum," sagði Braaten léttur í bragði.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir