Pickford framlengir við Everton - Barcelona hyggst kaupa Rashford - Ekki framlengt við Lewandowski
   mán 13. október 2025 19:19
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Leikmaður Tottenham tekur sæti Watkins
Mynd: EPA
Ollie Watkinis, framherji Aston Villa, þurfti að draga sig úr enska landsliðshópnum vegna meiðsla.

Hann meiddist í 3-0 sigri í æfingaleik gegn Wales þegar hann klessti á stöngina.

Hinn 21 árs gamli Dane Scarlett, framherji Tottenham, hefur verið kallaður inn í hópinn í hans stað. Liðið mætir Lettlandi á morgun og getur tryggt sér farseðilinn á HM með sigri.

Scarlett hefur ekki komið við sögu undir stjórn Thomas Frank á tímabilinu en hann hefur verið ónotaður varamaður í fimm leikjum. Hann hefur skorað eitt mark í 22 leikjum.

Harry Kane var ekki með gegn Wales vegna meiðsla en hann verður klár í slaginn gegn Lettlandi.
Athugasemdir
banner