
KF er komið áfram í Mjólkurbikarnum eftir 4-0 útisigur gegn Tindastóli í dag.
Slobodan Milisic þjálfari KF var að vonum ánægður með sigurinn en segir að það hafi vantað eitthvað uppá í leik liðsins.
„Þetta er fyrsti alvöru leikurinn okkar í vetur, það vantaði svolítið uppá en það er gott að komast áfram. Það vantaði marga leikmenn í dag en þetta kemur hægt og rólega."
Liðið lagði mikið upp með að senda langa bolta á bakvið vörn Tindastóls í dag og við því sagði Slobodan einfaldlega: „Þetta var eina markmiðið okkar í dag."
KF spilar í 2. deildinni í sumar en Slobodan vildi lítið gefa upp um markmið liðsins. Bara taka einn leik í einu og sjá svo til.
Athugasemdir