„Það eru góðar fréttir,“ sagði Zoran Miljkovic varðandi það að spila aftur í 1. deild á næsta ári. „Það eru einnig góðar fréttir að við spiluðum vel þrátt fyrir það að hafa tapað. Fyrsta markið var ekki löglegt, boltinn fór ekki yfir línuna en það skiptir ekki máli núna þar sem leikurinn er búinn.“
Lestu um leikinn: KA 3 - 1 Þróttur R.
Þetta var jafn leikur en að lokum féll þetta KA megin en ert þú sáttur með frammistöðu þinna manna?
„Það er alveg rétt. Við og þeir lékum vel og bæði lið fengu færi. Þeir fá mark þar sem leikmenn mínir vilja meina að boltinn hafi aldrei farið inn. Í seinni hálfleiknum reyndum við að sækja og ná betri niðurstöðu. Leikurinn var opinn og áhugaverður þar sem bæði lið reyndu að spila fótbolta.“
Nánar er rætt við Zoran í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir























