Ísland mætir Noregi í gríðarlega mikilvægum leik í undankeppni HM klukkan 18:00 í kvöld. Með sigri getur Ísland gulltryggt sæti í umspili um sæti á HM í Brasilíu á næsta ári.
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna, fór með íslenska liðinu út og hann er bjartsýnn fyrir leikinn.
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna, fór með íslenska liðinu út og hann er bjartsýnn fyrir leikinn.
,,Þetta verður hörkuleikur. Það er gríðarlega mikið undir og mikil pressa en mér finnst liðið í ótrúlega góðu jafnvægi og engin ástæða til annars en að vinna þennan leik," sagði Freyr sem spáir Íslandi sigri í kvöld.
,,Ég er ekkert rosalega góður að spá en við vinnum leikinn með einu marki."
Freyr hefur fylgst með íslenska landsliðinu og landsliðsþjálfurunum að störfum í Noregi undanfarna daga.
,,Áður en ég fer í mitt fyrsta verkefni erlendis er mjög gott fyrir mig að sjá hvernig þeir koma að praktískum hlutum á erlendri grundu. Það er gott að sjá hvernig þeir vinna og maður getur alltaf bætt við sig þekkingu og lært af góðu fólki."
Eftir leikinn í kvöld mun Freyr síðan halda til Svíþjóðar að hitta leikmenn í íslenska kvennalandsliðinu en hann hefur einnig hitt leikmenn í Noregi undanfarna daga.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir






















