Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   mið 15. desember 2021 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kemur sem „wildcard" til ÍBV - „Hans að grípa tækifærið"
Aldrei á ævinni talað við Hauk Pál
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haukur Páll
Haukur Páll
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Daníel Geir Moritz, formaður knattspyrnuráðs ÍBV, ræddi um ÍBV í útvarpsþættinum Fótbolti.net á laugardag.

Halldór Jón Sigurður Þórðarson var tilkynntur sem nýr leikmaður ÍBV í síðustu viku. Hann gekk í raðir félagsins frá Víkingi og annar leikmaðurinn sem ÍBV fékk í sínar raðir eftir að síðasta tímabili lauk. ÍBV endaði í 2. sæti Lengjudeildarinnar í fyrra og spilar í efstu deild næsta sumar.

Sjá einnig:
„Þjóðsaga að það sé erfitt að fá Íslendinga til Eyja"

„Halldór Jón kemur sem „wilcard" inn í þetta. Hann hefur ekki fengið stóra „breakið" þannig það er hans að grípa það hjá okkur," sagði Daníel.

„Þú færð allavega 100% framlag þar. Fólkið verður ekki svikið um hlaupatölur hjá Halldóri Jóni þó að hann reki boltann stundum aftur fyrir endamörk," sagði Tómas Þór Þórðarson sem er stuðningsmaður Víkings og þekkir því til Halldórs.

„Ekki spurning, ef það er eitthvað sem fólkið á hólnum elskar þá er það alvöru framlag. Ég er mjög spenntur að sjá hvernig hann passar í þetta hjá okkur. Hann er ekkert eðlilega áræðinn eins og við vitum og það þarf stundum að leika á hann tvisvar til að fara framhjá honum," sagði Daníel.

Frá því viðtalið var tekið er búið að staðfesta að Andri Rúnar Bjarnason er einnig genginn í raðir ÍBV.

Aldrei á ævinni talað við Hauk Pál
Greint var frá í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í síðustu viku að Haukur Páll Sigurðsson gæti verið á leið í ÍBV.

Haukur hefur síðan neitað því alfarið:
Segir ekkert til í því að hann gæti farið til Vestmannaeyja

„Það er talað um eitt og annað í þessu og það er ennþá meira talað um ÍBV þegar við erum komnir aftur í stærsta partíið. En ég hef aldrei á ævi minni talað við Hauk Pál. Þannig að þær fréttir voru úr mjög lausu lofti gripnar," sagði Daníel.

„Haukur Páll er náttúrulega Haukur Páll en ég held að við séum komnir í toppmál með okkar miðju," bætti Daníel við.
Útvarpsþátturinn - Freysi, Eyjar og Emil Páls
Slapp
banner