banner
   fim 16. janúar 2020 22:50
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Manchester Evening News 
Pep: Mahrez getur ekki meiðst - Hann er ekki með vöðva
Mynd: Getty Images
Riyad Mahrez hefur verið að gera góða hluti með Manchester City undanfarnar vikur og var Josep Guardiola spurður út í alsírska kantmanninn.

Mahrez skoraði 7 mörk í 27 leikjum á síðustu leiktíð og er kominn með 7 mörk í 18 leikjum á þessu tímabili.

„Munurinn á þessu tímabili og því síðasta er einfaldur. Stjórinn gefur honum fleiri tækifæri," sagði Guardiola og talaði þannig um sjálfan sig í þriðju persónu. „Hann spilaði mjög vel á síðustu leiktíð og er að gera vel núna. Hann elskar að spila fótbolta."

Guardiola talaði svo um að Mahrez yrði sjaldan fyrir vöðvameiðslum og missti út úr sér ummæli sem gætu þótt móðgandi.

„Lítið bara á fótleggina hans, það er ómögulegt fyrir hann að verða fyrir meiðslum því hann er ekki með neina vöðva."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner