Það var heldur betur mikil dramatík er AEK vann AE Larissa 4-2 í grísku úrvalsdeildinni í gær en það virtist allt ætla að sjóða upp úr undir lok leiksins.
AEK komst tveimur mörkum yfir í leiknum en þegar tuttugu mínútur voru eftir skoraði Larissa tvö mörk, það síðara á 80. mínútu.
Fjórum mínútum var bætt við venjulegan leiktíma og tókst Christos Albanis að koma AEK yfir í uppbótartímanum en það var þá sem dramatíkin fór af stað.
Larissa fékk vítaspyrnu eftir að dómari leiksins hafi nýtt sér VAR-tæknina en markvörður AEK sá við Benjamin Moukandjo á punktinum.
AEK fór í skyndisókn og skoraði Damian Szymanski af stuttu færi og lokatölur því 4-2 fyrir AEK en hægt er að sjá lokamínúturnar hér fyrir neðan.
The dramatic last few minutes of today's AEL - AEK (Greek Super League) from r/soccer
Athugasemdir