Síðustu tveir leikir fyrstu umferðar riðlakeppni Evrópumótsins fara fram klukkan 16:00 og í kvöld. Tyrkland mætir Georgíu í nágrannaslag í dag, áður en Cristiano Ronaldo gæti leitt Portúgal út á völlinn í áhugaverðum slag gegn Tékklandi.
Liðin leika öll í F-riðli mótsins en fyrstu leikjunum er lokið í öllum öðrum riðlum.
Það er langt síðan Tyrkland var með jafn sterkt landslið og þeir eru með í dag og verður áhugavert að sjá hvernig Georgíu gengur í sinni frumraun á Evrópumótinu.
Hinn umtalaði Khvicha Kvaratskhelia verður þar í fremstu víglínu, en það eru afar fáir fótboltasérfræðingar sem búast við að Georgíumenn næli sér í meira en eitt eða tvö stig í riðlakeppninni.

Vincenzo Montella þjálfari Tyrklands og Willy Sagnol þjálfari Georgíu hafa opinberað byrjunarlið sín.
Byrjunarlið Tyrklands: Günok; Ayhan, Müldür, Bardakc?, Akaydin, Kadioglu; Kökçü, Çalhanoglu; Arda Güler, Y?ld?z; Y?lmaz.
Byrjunarlið Georgíu: Mamardashvili; Kverkvelia, Kashia, Dvali; Kakabadze, Kiteishvili, Kochorashvili, Mekbavishvili, Chakvetadze; Kvaratskhelia, Mikautadze.
Athugasemdir