Guardiola í árs frí og tekur svo við landsliði - Alonso vill sóknarmann Brentford - Bowen eftirsóttur
   mið 20. maí 2026 14:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mist Rúnars spáir í 5. umferð Bestu kvenna
Mist Rúnarsdóttir.
Mist Rúnarsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mist spáir því að FH verði fyrsta liðið til að taka stig af ÍBV.
Mist spáir því að FH verði fyrsta liðið til að taka stig af ÍBV.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Skorar Kayla Rollins sigurmark Þróttar í kvöld?
Skorar Kayla Rollins sigurmark Þróttar í kvöld?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er heil umferð í Bestu deild kvenna í kvöld. Mist Rúnarsdóttir, sérfræðingur í kvennaboltanum, spáir í leiki kvöldsins.

FH 3 - 1 ÍBV (18:00 í kvöld)
Ég hef tilfinningu fyrir því að FH-ingar verði fyrstar til að taka stig af sjóðheitum Eyjakonum. Þetta verður að sjálfsögðu hörkuleikur, opinn og skemmtilegur. Skýt á að Nia, Deja og Berglind Freyja setji mörk heimakvenna en Allison Patricia Clark skorar fyrir ÍBV eftir stoðsendingu Olgu Sevcova sem heldur áfram að valda usla.

Þór/KA 0 - 3 Breiðablik (18:30 í kvöld)
Blikar finna taktinn sinn aftur eftir vonbrigðaúrslit í síðasta leik liðsins.. Og reyndar vonbrigðaframmistöðu í síðasta deildarleik. Agla María og félagar sætta sig ekki við slíkt og mæta bandbrjálaðar norður. Fyrirliðinn skorar sjálf og leggur upp fyrir Líf. Senterarnir Olla Sigga og Bryndís Arna búa svo til eitt mark saman en það gengur ekkert að fá spákúluna til að segja til um hvor leggur upp og hvor klárar. Erfið byrjun Norðankvenna ílengist því en það styttist í að það fari að birta til á þeim bænum.

Valur 2 - 1 Fram (19:15 í kvöld)
Valskonur gerðu mjög vel í síðasta deildarleik og byggja ofan á þá frammistöðu. Þetta verður jafn og lokaður leikur en Ísabella Sara skorar stöngin inn á lokamínútunum og lukkudísirnar verða í Valstreyju í þetta skiptið. Vinnuþjarkurinn Kimberley Dóra skorar fyrra mark Vals eftir almennilegt klafs og refurinn Alda Ólafs skorar fyrir Fram.

Grindavík/Njarðvík 2 - 1 Stjarnan (19:15 í kvöld)
Það er alls ekki einfalt að lesa í þennan leik en það er líka erfitt að sjá fyrir sér að stórskemmtilegir nýliðar Grindavíkur/Njarðvíkur fari að hætta að koma öllum nema sjálfum sér á óvart. Þetta verður þungavigtarbarátta. Stál í stál og lítið sem skilur á milli. Mögulega Genevive í marki heimakvenna? Sjóðheit Sophia Faith Romine skorar bæði fyrir G/N en skemmtikrafturinn Úlfa Dís kemur sér á blað í deildinni og setur mark Stjörnunnar.

Víkingur R. 1 - 2 Þróttur R. (19:15 í kvöld)
Annar ótrúlega erfiður leikur að lesa í og væntanlega hnífjafn. Liðin hafa bæði átt slatta inni í deildarleikjunum sínum og spurning hvenær þetta fari að smella almennilega. Ég sé fyrir mér að þetta fari með minnsta mun og set sigurinn á uppeldisfélagið svo mér verði ekki afneitað í dalnum. Gæðablóðið Bergdís Sveins skorar screamer beint úr aukaspyrnu eins og henni er lagið og heldur þannig upp á nýjan samning. Unnur Dóra laumar sér á fjær einhverntímann í seinni hálfleik og jafnar með góðu skoti áður en að Kayla Rollins setur skallamark.

Þakka annars fyrir að fá spátraustið í þessari 5. umferð. Hún gæti varla verið snúnari.

Fyrri spámenn:
Aldís Kara (4 réttir)
Ásta Eir (4 réttir)
Katrín Ásbjörns (3 réttir)
Arna Eiríks (2 réttir)
Besta kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Breiðablik 4 4 0 0 11 - 4 +7 12
2.    ÍBV 4 4 0 0 12 - 7 +5 12
3.    FH 4 2 1 1 6 - 5 +1 7
4.    Þróttur R. 4 2 0 2 6 - 5 +1 6
5.    Grindavík/Njarðvík 4 2 0 2 6 - 6 0 6
6.    Víkingur R. 4 2 0 2 7 - 8 -1 6
7.    Stjarnan 4 1 1 2 6 - 6 0 4
8.    Valur 4 1 0 3 6 - 9 -3 3
9.    Þór/KA 4 0 2 2 4 - 7 -3 2
10.    Fram 4 0 0 4 3 - 10 -7 0
Slapp
banner