Ísland - Nígería á morgun
Eins og við fjölluðum við fyrr í vikunni er spáð miklum hita á leikdegi í Volgograd á morgun, þegar Ísland mætir Nígeríu í öðrum leik sínum á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi.
Hitatölurnar hafa þó örlítið lækkað fyrr um daginn, en spáð er 31° og sól á meðan á leik stendur á Volgograd leikvanginum. Leikurinn hefst klukkan 18:00 í Rússlandi (15:00 á Íslandi).
Hitatölurnar hafa þó örlítið lækkað fyrr um daginn, en spáð er 31° og sól á meðan á leik stendur á Volgograd leikvanginum. Leikurinn hefst klukkan 18:00 í Rússlandi (15:00 á Íslandi).
Helgi Kolviðsson, aðstoðarlandsliðsþjálfari, sagði á fréttamannafundi Íslands í gær að menn séu við öllu búnir fyrir leikinn á föstudag, bæði hvað varðar hitann og flugurnar.
„Auðvitað höfum við rætt um þetta. Við höfum fengið upplýsingar og hjálp með þetta," sagði Helgi á fréttamannafundi í dag.
„Þetta eru hlutir sem við getum ekki breytt og við þurfum að taka þessu. Við erum með lækna og reynum að undirbúa okkur eftir bestu getu. Kannski hjálpar að taka vítamín eða eitthvað svoleiðis. Þetta verður eins fyrir bæði lið."
Veðurspáin í Reykjavík er öllu lægri, 9° og skýjað.
Sjá einnig:
„Kúgast ef ég fæ flugur upp í mig"
Kane kvartar yfir flugunum - Ísland spilar þarna á föstudag
Athugasemdir