Koné fer til Manchester - Zirkzee fær loforð frá Roma - Chelsea og Villa skoða Santi Castro - John Terry til Oxford? - Aké eftirsóttur
banner
   mán 29. desember 2025 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Afríkukeppnin í dag - Salah og Marmoush í eldlínunni
Mynd: EPA
Mohamed Salah, Omar Marmoush og félagar í egypska landsliðinu eru komnir áfram í 16-liða úrslit Afríkukeppninnar, liðið mætir Angóla í lokaumferð riðlakeppninnar í dag en Angóla á möguleika á því að komast áfram.

Suður-Afríka og Simbabve mætast í sama riðli þar sem sigurvegarinn gulltryggir sér áfram.

Heimamenn í Marokkó mæta Sambíu og Malí mætir Kómoreyjum. Marokkó er á toppnum með fjögur stig, Malí og Sambía með tvö og Kómoreyjar með eitt stig.

mánudagur 29. desember

Afríkukeppnin
16:00 Angola - Egyptaland
16:00 Simbabve - Suður-Afríka
19:00 Kómoreyjar - Malí
19:00 Sambía - Marokkó
Athugasemdir
banner