Koné fer til Manchester - Zirkzee fær loforð frá Roma - Chelsea og Villa skoða Santi Castro - John Terry til Oxford? - Aké eftirsóttur
banner
   sun 28. desember 2025 19:50
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Afríkukeppnin: Mahrez skaut Alsír áfram
Mynd: EPA
Alsír er komið áfram í 16-liða úrslit í Afríkukeppninni eftir sigur gegn Búrkína Fasó í kvöld.

Riyad Mahrez var hetja liðsins en hann skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu. Hann hefur skorað þrjú af fjórum mörkum liðsins í fyrstu tveimur leikjunum.

Rayan Ait-Nouri, leikmaður Man City, var einnig í byrjunarliði Alsír í dag. Luca Zidane, sonur Zinedine Zidane, fyrrum landsliðsmanns Frakka, er markvörður Alsír.

Liðið er á toppi E-riðils með sex stig en Búrkína Fasó og Súdan munu spila úrslitaleik um að komast áfram í lokaumferðinni. Súdan lagði Miðbaugs-Gíneu í dag.

Miðbaugs-Gínea 0 - 1 Súdan
0-1 Saul Coco ('74 , sjálfsmark)

Alsír 1 - 0 Búrkína Fasó
1-0 Riyad Mahrez ('23 , víti)
Athugasemdir
banner