Miðjumaður Everton orðaður við Man Utd - Ramos til Liverpool?
   sun 28. desember 2025 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - Ofurbikarsliðin mæta aftur til leiks
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það eru fjórir leikir á dagskrá í ítalska boltanum í dag og hefst fjörið í hádeginu, þegar AC Milan fær Hellas Verona í heimsókn.

Milan situr í öðru sæti Serie A deildarinnar sem stendur, einu stigi á eftir nágrönnum sínum í liði Inter. Lærlingar Max Allegri geta tekið toppsætið með sigri í dag, þó það verði mögulega aðeins tímabundið þar sem Inter mætir til leiks á erfiðan útivöll Atalanta í kvöld.

Þar er um annan nágrannaslag að ræða þar sem Bergamó, heimaborg Atalanta, er staðsett beint við hliðina á Mílanó.

Inter er með 33 stig eftir 15 umferðir, ellefu stigum fyrir ofan Atalanta og með leik til góða.

Napoli og Bologna, sem mættust í úrslitaleik ítalska ofurbikarsins eftir sigra gegn Inter og Milan í undanúrslitum, eiga líka leiki í dag.

Ítalíumeistarar Napoli heimsækja nýliða Cremonese og þurfa á sigri að halda í toppbaráttunni, áður en Bologna fær nýliða Sassuolo í heimsókn. Þar þurfa heimamenn á sigri að halda í Evrópubaráttunni.

Leikir dagsins
11:30 Milan - Verona
14:00 Cremonese - Napoli
17:00 Bologna - Sassuolo
19:45 Atalanta - Inter
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 15 11 0 4 34 14 +20 33
2 Milan 15 9 5 1 24 13 +11 32
3 Napoli 15 10 1 4 22 13 +9 31
4 Roma 16 10 0 6 17 10 +7 30
5 Juventus 16 8 5 3 21 15 +6 29
6 Bologna 15 7 4 4 23 13 +10 25
7 Como 15 6 6 3 19 12 +7 24
8 Lazio 16 6 5 5 17 11 +6 23
9 Atalanta 16 5 7 4 20 18 +2 22
10 Sassuolo 16 6 3 7 21 20 +1 21
11 Cremonese 16 5 6 5 18 18 0 21
12 Udinese 16 6 3 7 17 27 -10 21
13 Torino 16 5 5 6 16 26 -10 20
14 Lecce 15 4 4 7 11 19 -8 16
15 Cagliari 16 3 6 7 17 23 -6 15
16 Parma 15 3 5 7 10 18 -8 14
17 Genoa 16 3 5 8 16 24 -8 14
18 Verona 15 2 6 7 13 22 -9 12
19 Pisa 16 1 8 7 12 22 -10 11
20 Fiorentina 16 1 6 9 17 27 -10 9
Athugasemdir
banner