,,Ég kom aftur hingað í janúar fyrir undirbúningstímabilið og markmiðið var að vinna titilinn," sagði Gary Martin sem skoraði bæði mörk KR þegar liðið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn með 2-1 sigri á Val í dag.
Fyrra mark Gary var fallegt en hann skrúfaði boltann þá efst í fjærhornið í stöng og inn.,,Ég gat ekki gert neitt annað en að snúa hann upp í fjærhornið. Rúnar hefur alltaf sagt mér að æfa þetta og það tókst."
Gary er núna kominn með ellefu mörk í sumar og hann stefnir á að ná í markakóngstiitlinn en hann er marki á eftir Viðari Erni Kjartanssyni sem er markahæstur í augnablikinu.
,,Við erum komnir með titilinn og kannski fæ ég 90 mínútur í báðum leikjunum. Ég veit ekki hvort einhver hafi skorað fjögur eða fimm mörk í dag en markmið mitt er að ná þessu."
Næsti leikur KR er á fimmtudag en þá fer Gary á sínar gömlu heimaslóðir á Akranesi.,,Kannski geta þeir staðið heiðursvörð og klappað þegar við löbbum á völlinn. Ég efa að þeir geri það en maður veit aldrei."
Hannes Þór Halldórsson, markvörður KR, blandaði sér í viðtalið og sagði að Gary sé fluttur aftur á Akranes en frægt var á sínum tíma þegar hann sagðist ekki vilja búa þar lengur.
,,Ég veit ekki hvað Hannes er að tala um. Hann er að ljúga. Ég bý ekki á Akranesi, treystið mér. Ég hef komið þangað nokkrum sinnum en ég bý ekki þar," sagði Gary.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni en þar segist Gary vonast eftir að vera áfram hjá KR næsta sumar.
Athugasemdir























