„Við vorum ákveðnir í að sýna hvað við gátum, það er búið að vera tala mikið um okkur en við vitum alveg hvað við getum. Við ákváðum að byrja þetta af krafti og það gekk upp. Svo þegar þú ert kominn 3-0 yfir þá kannski eðlilega ferðu að verja stöðuna þína aðeins meira. Mér fannst við samt eiga fullt af sénsum í seinni hálfleik, markið datt ekki alveg en ég er bara drullu sáttur og bara ánægður með hvernig þetta er að koma til," sagði Adam Ægir Pálsson leikmaður Vals eftir 3-0 sigur gegn FH í kvöld.
Lestu um leikinn: Valur 3 - 0 FH
Adam skoraði sitt fyrsta mark á tímabilinu, en hann hefur byrjað alla leiki Vals hingað til.
„Þó ég segi sjálfur frá, og örugglega öllum leikmönnum finnst best að byrja alla leiki og finna fyrir trausti. Ég er bara þannig karakter að ég virka best ef ég fæ traust, og mér finnst ég hafa fengið það traust frá Hermanni og Chris. Ég er bara virkilega sáttur og þá var bara kominn tími á að borga til baka. Ég var bara ákveðinn í vetur að sýna hvað ég gæti og þetta er bara byrjunin, vonandi er þetta bara fyrsta af mörgum," sagði Adam.
Umtalið um Val hefur verið frekar neikvætt í vetur, en þessi sigur gæti verið byrjunin í að snúa því við.
„Ég held þetta sé bara partur af því að vera í Val. Mér finnst þetta bara forréttindi að vera í svona stórum klúbb og allir séu að tala um þig. Það er nú leiðinlegra ef enginn er að tala um þig. Það er bara gaman að finna fyrir svona pressu og gefur mér bara hvatningu. Ég skil það alveg að það er búið að vera breytingar en Valur er alltaf Valur og mér finnst við betri en fólk talar um en það er bara okkar að sýna það, þýðir ekkert að tala um það. Mér finnst margir duglegir að tala um Val en mér finnst það ekki allt verðskuldað. Svona er þetta," sagði Adam.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.
Adam Ægir, Hörður Ingi og Hólmar Örn skoruðu mörkin er Valsmenn gengu frá FH í fyrri hálfleik! ???????????? #bestadeildin pic.twitter.com/IXTs2tf3Om
— Besta deildin (@bestadeildin) April 23, 2026























