Newcastle vill Elanga - Liverpool leggur fram nýtt tilboð í Wirtz - Höjlund til Inter?
Leiðin úr Lengjunni - ÍR á toppinn og ekkert gengur upp í Árbænum
Útvarpsþátturinn - Sigur á Hampden, Besta liðið og Gunnar Heiðar
Turnar Segja Sögur - Írland frá Jackie Charlton til Heimis Hallgríms
Uppbótartíminn - Þurfum að vinna leikina á EM
Leiðin úr Lengjunni - Leiknismenn rifu í gikkinn og afgerandi úrslit
Innkastið - Umdeild atvik og Íslandsmeistararnir vakna
Neðri deildir lengst uppi!
Tveggja Turna Tal - Þorkell Máni Pétursson
Freysi á heimavelli - Hvernig er líf íslenska þjálfarans í Bergen?
Útvarpsþátturinn - Boltinn, Brann og bestu barirnir
Innkastið - Bitlausir Blikar og galopnir KR-ingar
Grasrótin - 4. umferð, Baldvin Borgars í mánaðarfrí
Hugarburðarbolti Uppgjörið í Enska !
Sveindís fer yfir ákvörðunina óvæntu - Valdi borg englanna
Hugarburðarbolti GW 38 Sturlaður lokasprettur í enska!
Leiðin úr Lengjunni - Hamingja á Húsavík og fúlir Fylkismenn
Uppbótartíminn - Nýtt lið á toppnum og mikilvægir landsleikir
Enski boltinn - Rándýr dómaramistök og bikar á loft á Anfield
Tveggja Turna Tal - Óskar Smári Haraldsson
Innkastið - Blikar lúta í gras og Davíð Smári finnur lausnir
   mán 24. febrúar 2014 15:30
Elvar Geir Magnússon
Upptaka - Tómas Joð og Viktor Örn í spjalli um Fylki
Viktor Örn eftir að hafa skrifað undir samning.
Viktor Örn eftir að hafa skrifað undir samning.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Tómas Joð Þorsteinsson.
Tómas Joð Þorsteinsson.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Tómas Joð Þorsteinsson og Viktor Örn Guðmundsson, leikmenn Fylkis, voru gestir útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 á laugardag. Í spilaranum hér að ofan má heyra þann hluta viðtalsins þar sem rætt var um Fylki og íslenska boltann.

Viktor kom til Fylkis frá FH síðasta haust.

„Ég vildi spila meira og leist vel á það sem Ási hafði upp á að bjóða," segir Viktor sem er þekktur sem vinstri bakvörður en hefur verið að leika sem sóknarmiðjumaður á uundirbúningstímabilinu. Hann vonast eftir að ná að festa sig í sessi þar.

„Ég er að finna mig ágætlega þar og fíla það mjög vel. Ég hef spilað flest alla leiki þarna í vetur og stundum verið færður í vinstri bakvörðinn þegar líða fer á leikina."

Missir af Ásgeiri Berki og Viðari úr klefanum
Fylkismenn hafa misst tvo lykilmenn frá síðasta tímabili sem eru farnir erlendis í atvinnumennsku, það eru Ásgeir Börkur Ásgeirsson og Viðar Örn Kjartansson.

„Þeir skilja báðir eftir sig skarð, ekki bara á vellinum heldur líka klefalega séð," segir Tómas Joð.

„Ásgeir Börkur styrkir liðið gríðarlega í því sem hann gerir. Maður tók vel eftir því þegar hann kom frá Sarpsborg síðasta sumar hversu mikið hann er að spila upp á styrkleika sína og hversu mikill kostur það var. Einn af hans helstu kostum er hve mikið hann smitar út frá sér og rífur upp sjálfstraustið hjá öðrum. Svo er hann algjör höfðingi í klefanum."

Hemmi Hreiðars æfir með Fylki
Hermann Hreiðarsson æfir með Fylki einu sinni í viku. Hann er ekki að ganga í raðir félagsins en heldur sér í formi.

„Hann er að halda sér í kjörþyngd held ég. Hann mætir með okkur í Egilshöllina á þriðjudögum. Hann nennir ekki að æfa úti og ég skil það vel. Það er frábært að hafa hann. Hann lífgar upp á hlutina, er með brandara og miðlar af reynslu. Svo er hann ennþá góður í fótbolta og frábært að fá hann inn á æfingar," segir Tómas.

Viðtalið má heyra í spilaranum hér að ofan en þar er meðal annars rætt frekar um leikmannahóp Fylkis, sumarið framundan og "Joð" nafnið sem Tómas reynir að fá samþykkt hjá mannanafnanefnd.
Athugasemdir
banner
banner
banner