Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 24. febrúar 2023 20:19
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ten Hag minntist á sigur Real gegn Liverpool - „Stórsigur"
Mynd: EPA

Erik ten Hag stjóri Manchester United var í skýjunum með sigur liðsins gegn Barcelona í Evrópudeildinni í gær.


Hann bar sigur liðsins við sigur Real Madrid gegn Liverpool á þriðjudaginn en Real vann Liverpool 5-2 á Anfield.

„Barcelona er á toppnum í La Liga, átta stigum á undan Real Madrid. Við sáum hvað Real gerði í þessari viku. Mér finnst þetta stórsigur gegn Barcelona," sagði Ten Hag.

„Við höfum unnið góða sigra, Liverpool og Arsenal heima mjög góðir en þetta er besti sigurinn yfir tvo leiki."

Man Utd fer aftur til Spánar í næstu umferð Evrópudeildarinnar þar sem liðið mætir Real Betis.


Athugasemdir
banner
banner
banner