Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
Elmar Atli: Maður var búinn að bíða eftir þessu
Auður: Gaman að ná að vinna Þrótt sem voru taplausar í deildinni
Haddi: Gjörsamlega óþolandi hvað sumir mega öskra inn á völlinn
Óli Kristjáns: Ábyrgðin á mér og stelpunum
„Við komumst út úr þessu það er klárt mál"
Davíð Smári: Skjaldarmerki þess sem Vestri stendur fyrir
Óskar Smári: Ótrúlega stoltur af liðinu mínu í dag
Murielle Tiernan: Eina sem þú þarft að gera er að setja hann inn
Gummi Kri: Er það ekki svoleiðis sem við viljum hafa þetta?
Tufa um rauða spjaldið: Okk­ur á bekkn­um fannst hann hlaupa á Bjarna og henda sér niður
Jökull: Hefði viljað sjá okkur vera meira 'ruthless' í byrjun leiks
Alli Jói: Er svekktur með sjálfan mig
Haraldur: Kemur auka orka þegar við missum mann af velli
Gunnar Heiðar: Eins og við þyrftum að fá mark í andlitið til þess að allir kveiki á sér
Siggi Höskulds: Svekkjandi að ná ekki að halda þetta lengur út eftir að skora
„Sýnir úr hverju menn eru gerðir þegar það er búið að berja á sér"
Gunnar Már: Sérð það á liðinu að sjálfstraustið er ekkert
Gústi Gylfa eftir fyrsta Breiðholtsslaginn: Ekki slegnir út af laginu
Mætti góðum vini sínum - „Klobbaði hann og þá fékk hann alveg að vita af því"
Jóhann Birnir: Það er akkúrat það sem við ætlum að vera
   mán 24. júlí 2023 21:44
Brynjar Ingi Erluson
Sá ekki í handritinu að hann myndi mæta pabba sínum - „Þetta er mjög skrítið“
Orri Steinn ásamt foreldrum sínum
Orri Steinn ásamt foreldrum sínum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Gróttumaðurinn Orri Steinn Óskarsson verður í leikmannahópi danska félagsins FCK þegar það mætir Breiðabliki í 2. umferð í forkeppni Meistaradeildar Evrópu á Kópavogsvelli á morgun, en þetta er afar sérstakur viðburður fyrir hann — enda mætir hann föður sínum.

Orri var seldur frá Gróttu til FCK fyrir fjórum árum en þá var Óskar Hrafn Þorvaldsson, faðir Orra, ný búinn að taka við Breiðabliki eftir að hafa þjálfað Gróttu.

Framherjinn hefur unnið sig hratt upp hjá FCK og nú er komi að degi sem hann bjóst aldrei við að upplifa, að mæta pabba sínum í Meistaradeild Evrópu.

Óskar sagði sjálfur í viðtali við Fótbolta.net
að þeir myndu ekkert ræða leikinn þegar þeir hittast og væri fyrst og fremst gaman að hitta soninn.

„Það er spennandi og skemmtilegt að mæta íslensku liði. Ég er ekki bara að fara að mæta pabba en það verður mjög gaman.“

„Þetta er mjög skrítið. Þetta er ekki eitthvað sem við sáum í handritinu þegar við vorum saman í fjórða flokki Gróttu. Þetta er eitthvað sem gerist og við verðum að díla við það eins og menn,“
sagði Orri við Fótbolta.net en hann hélt að þegar hann yfirgaf Gróttu að þeir væru að kveðjast.

„Nei, það var einmitt leiðin sem ég hélt að við myndum kveðjast, en þessi fótboltaheimur kemur alltaf til baka og býður manni upp á eitthvað skemmtilegt.“

Hann kveðst spenntur fyrir því að mæta Blikum en vildi þó alls ekki mæta þeim.

„Það gefur þessu annað 'edge' en 'at the end of the day' eru þetta bara ellefu á móti ellefu. Gamla klisjan, en við verðum að klára þennan leik og svo bara horfa í næsta leik.“

„Mig langað ekkert að mæta þeim fyrst og vissi ekki hvað ég vonaði en langaði í það besta fyrir pabba og langaði ekki að mæta honum. Við verðum bara að díla við þetta.“


Orri má alveg hitta fjölskyldu sína á meðan hann er á Íslandi en segist þurfa að halda einbeitingu fyrir leikinn.

„Ég held að ég megi alveg hitta fólk en maður verður að hafa smá fókus á leiknum og fer því varlega í þetta,“ sagði Orri enn fremur en hann ræðir einnig um svekkelsið að fara ekki á EM með U19 ára landsliðinu, væntingar hans fyrir komandi tímabil og margt fleira í viðtalinu hér fyrir ofan.
Athugasemdir
banner