
„Við vissum alltaf að það yrði þolinmæðisverk að þróa okkar leik og mér finnst í síðustu leikjum sem við höfum spilað við ná að mixa leik okkar betur upp og erum að skapa hættur úr mismunandi stöðum þannig að þetta var sætt í dag.“ Sagði Björn Sigurbjörnsson þjálfari Selfoss um bætt gengi liðsins eftir 2-0 Selfoss gegn Keflavík í kvöld. En Selfossliðið sem gekk í gegnum langan kafla án sigurs um tíma í mótinu hefur nú unnið tvo síðustu leiki sína.
Lestu um leikinn: Keflavík 0 - 2 Selfoss
Selfoss komst yfir í byrjun leiks þegar Brenna Lovera skoraði eftir þriggja mínútna leik. Liðið hafði stjórn á leiknum nánast allan leikinn og hleypti Keflavíkurliðinu aldrei almennilega inn í leikinn.
„Mér fannst við vera með góða stjórn, hins vegar er 1-0 staða alltaf hættuleg og Keflavíkurliðið eru góðar í mörgu og eru búnar að bæta sinn leik frá því að við spiluðum við þær síðast. En þegar við komum út í seinni hálfleik töluðum við um að nota færri snertingar í því sem við erum að gera og spila það sem við sjáum og mér fannst seinni hálfleikur hjá okkur vera mjög vel framkvæmdur þó fyrri hálfleikur hafi svo sem verið það líka. “
Selfoss siglir lygnan sjó um miðja deild þegar fjórar umferðir eru eftir af mótinu. Er markmiðið að vinna rest og freista þess að klífa aðeins ofar í töfluna?
„Auðvitað er það það sem maður er alltaf að vinna að, að safna stigum og þokast upp töfluna en á þeim forsendum sem við erum að reyna að vinna með. Við erum að blóðga fullt af ungum stelpum í leiðinni og gefa þeim tækifæri og munum halda áfram að gera það. Fjórir leikir en við vitum það að þrír af þeim eru gegn Stjörnunni, Breiðablik og Val og svo eigum við KR sem er í mikilli baráttu um að bjarga lífi sínu þannig að þetta verða allt mjög erfiðir leikir. Það eru alltaf bara smáskref í einu en ef við byggjum á þessa tvo síðustu leiki eigum við að geta gefið þessum liðum góða leiki. “
Sagði Björn en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir