Baldvin Már Borgarsson, fréttaritari Fótbolta.net á Akranesi í gær, hrósaði Oliver Stefánssyni í hástert fyrir hans frammistöðu gegn Víkingi í gær. Oliver er leikmaður ÍA og er á láni frá Norrköping.
Í viðtali við Jón Þór Hauksson líkti Baldvin frammistöðu Olivers við Patrick Vieira upp á sitt besta hjá Arsenal. Stærri verða orðin ekki en frammistaða Olivers var eftirtektarverð. Með hann innanborðs hefur ÍA ekki fengið á sig mark en hann var tekinn af velli í hálfleik í 1. umferð þar sem hann er að komast af stað eftir meiðsli. Oliver átti stóran þátt í fyrsta marki ÍA í gær þegar boltinn hrökk til Gísla Unnarssonar eftir að Oliver fór upp í skallaeinvígi.
Í viðtali við Jón Þór Hauksson líkti Baldvin frammistöðu Olivers við Patrick Vieira upp á sitt besta hjá Arsenal. Stærri verða orðin ekki en frammistaða Olivers var eftirtektarverð. Með hann innanborðs hefur ÍA ekki fengið á sig mark en hann var tekinn af velli í hálfleik í 1. umferð þar sem hann er að komast af stað eftir meiðsli. Oliver átti stóran þátt í fyrsta marki ÍA í gær þegar boltinn hrökk til Gísla Unnarssonar eftir að Oliver fór upp í skallaeinvígi.
Lestu um leikinn: ÍA 3 - 0 Víkingur R.
Sjá einnig:
„Hann er með risastórt Skagahjarta, fyrst og fremst"
Fyrsti keppnisleikur Olivers í þrjú ár -„Ólst upp við mikla leiðtoga"
Ótrúlega sterk skilaboð í leikinn
Sérfræðingarnir í Bestu stúkunni á Stöð 2 Sport ræddu um frammistöðu Oliver. „Það er klárt mál að þetta gaf tóninn, ótrúlega sterk skilaboð inn í þennan leik," sagði Oliver um hörkutæklingu Olivers á Kristal Mána Ingason á þrettándu mínútu. Stuðningsmenn voru hrifnir af tæklingunni og létu vel í sér heyra. „Það hvernig hann fór fram með þessari tæklingu lagði grunninn fyrir allt og alla á Skaganum. Hann svo bakkar þetta allt upp með frammistöðunni í leiknum, hann var verulega góður og ég held að hann verði stór leikmaður í þessari deild," sagði Atli.
„Hann er af þessu kyni, ein af þessum ættum uppi á Skaga - það koma reglulega menn úr þessari ætt sem við höfum fylgst með. Hann er aðeins nítján ára gamall og spilar eins og fullorðinn maður í þessari stöðu," sagði Guðmundur Benediktsson.
„Hann er búinn að spila mjög vel... ég vil ekki setja of mikla pressu á strákinn en ég held að Skaginn sé ekki búinn að fá á sig mark með hann inn á vellinum. Það kannski segir eitthvað," sagði Lárus Orri Sigurðsson.
Jón Þór smeykur við Stebba?
„Jón Þór var að tala um [í viðtali við Stöð 2 Sport eftir leik] að hann væri smeykur við að hitta sjúkraþjálfarann [Kjartan Guðbrandsson, einkaþjálfari] eftir leik. Ég skil það nú ekki, hann ætti að vera smeykur við það ef Stebbi nær honum," sagði Lárus og uppskar hlátur frá Gumma og Atla Viðari. Oliver lék allan leikinn í gær sem er heilum hálfleik meira en hann mátti spila í fyrstu umferð.
Stebbi er Stefán Þórðarson, faðir Olivers. Í viðtali við Fótbolta.net sagði Oliver: „Ég átti nú að taka í kringum hálfleikinn í dag en miðað við stuðninginn þá verður maður að þrauka aðeins lengur út og þetta gekk í dag. Skrokkurinn hélst heill og ég er bara sáttur," sagði Oliver. Það sem hefur verið að hrjá hann í vetur eru mjaðmameiðsli.





