Heimild: DM
Paul Scholes segir að Luis Suarez sé ekki aðeins að skemma orðspor sitt heldur einnig þeirra sem standa honum næst með því að bíta andstæðinga sína ítrekað.
Scholes segir það vera syndsamlegt vegna þess að ótrúlegir knattspyrnuhæfileikar Úrúgvæans munu falla í skuggann á öllum bitunum.
Scholes segir það vera syndsamlegt vegna þess að ótrúlegir knattspyrnuhæfileikar Úrúgvæans munu falla í skuggann á öllum bitunum.
,,Luis Suarez fékk 10 leikja bann fyrir að bíta Ivanovic, leikmann Chelsea, í apríl 2013. Það var augljóslega ekki nægilega hörð refsing," sagði Scholes við Paddy Power.
,,Hann varð félaginu sínu, landi sínu og fjölskyldu sinni til skammar þegar hann beit Giorgio Chiellini á þriðjudaginn.
,,Honum mun líða hræðilega eftir þetta og allt þetta mál er syndsamlegt því hann er ótrúlega góður leikmaður.
,,Fólk mun frekar muna eftir bitunum hans Suarez heldur en æðri knattspyrnuhæfileikum mannsins.
,,Það er ekki nóg að setja hann í bann út HM, því Kólumbía er hvort sem er að fara að slá Úrúgvæ út í næsta leik."
Fréttir af biti Suarez:
Scholes: Ekki nóg að banna Suarez af HM
Joey Barton: Ég elska Suarez
Myndband: Nýtt myndband af broti Suarez
Luis Suarez: Ég lenti á öxlinni á honum
Norðmaður veðjaði á að Suarez myndi bíta mann
FIFA byrjað að skoða málið
Aron Einar: Suarez virðist ekki ætla að læra
Chiellini: Suarez kemst upp með að vera naðra
Myndband með öllum bitum Suarez
Myndaveisla af Suarez að bíta andstæðing
Viðbrögð af Twitter
Frétt um atvikið
Taktu þátt í HM-umræðunni á Facebook! Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook þar sem oft skapast líflegar umræður um boltann.

