,,Við fórum yfir þessi mál áðan þjálfarateymið og Eiríkur Þorvarðarson markvarðaþjálfari er sérleg málpípa þjálfarateymisins. Hann sagði að við þyrftum alvarlega að hugsa um hvað við ætlum að gera í þessum vítaskyttumálum," grínaðist Heimir Guðjónsson þjálfari FH eftir 2-0 sigur á ÍA í kvöld aðspurður um hvort leit sé hafin að nýrri vítaskyttu eftir að Björn Daníel Sverrisson skaut í þverslá úr víti í leiknum.
,,Fyrri halfleikur var ekki góður af okkar hálfu. Við vorum svolítið hægir og boltinn gekk ekki nógu hratt á milli manna. Það vantaði hreyfingu á mannskapinn. En mér fannst við laga það í seinni hálfleik. Boltinn gekk hraðar á milli og við náðum að fara betur upp vængina. Fyrsta markið kemur þannig, góð fyrirgjöf frá Sam Tillen."
Nánar er rætt við Heimi í sjónvarpinu að ofan.
Athugasemdir























