,,Ég er mjög glöð, það er frábært að ná að klára þetta í dag, við höfum beðið lengi eftir þessu, nú er þetta bara komið og ég get sagt það loksins," sagði Harpa Þorsteinsdóttir framherji Stjörnunnar eftir að liðið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í kvöld.
,,Þetta er búið að vera ótrúlegt sumar og að við skulum klára þetta núna taplausar er frábært, ég gæti ekki verið stoltari og ánægðari að vera í þessu liði."
,,Valur er í öðru sæti og við klárum þær sannfærandi. Án þess að reyna að vera hrokafull get ég sagt að við séum besta liðið á þessum tímapunkti. Ég er svo stolt af því að vera í þessu liði, þetta eru bara forréttindi."
Nánar er rætt við Hörpu í sjónvarpinu hér að ofan en á tímabili heyrðist illa í henni þegar liðið fagnaði beint fyrir aftan hana.
Athugasemdir






















