Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
   lau 28. september 2013 16:30
Valur Páll Eiríksson
Logi Ólafsson: Hóflega drukkið vín gleður mannsins hjarta
Logi Ólafsson.
Logi Ólafsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Þetta var slakur leikur af okkar hálfu og lélegur endir á góðu móti," sagði Logi Ólafsson þjálfari Stjörnunnar eftir 4-0 tap fyrir FH í Kaplakrika í lokaumferð Pepsi-deildarinnar í dag.

,,Við erum að ná sögulegum árangri í sögu félagsins en mér fannst við ekki vera tilbúnir í að koma og stíga skrefið lengra. Það var eins og þetta skipti engu máli sem það virkilega gerði. Ég er virkilega óánægður með þetta."

Logi var spurður hvort hann hafi séð einhverja ljósa punkta þrátt fyrir þetta stóra tap og svaraði því neitandi.

,,Nei, það var bara bjart í Hafnarfirði og það eru einu ljósu punktarnir sem við sáum því við vorum ekki góðir í dag," sagði Logi en tímabilið heilt yfir var gott, liðið komst í Evrópukeppni og bikarúrslit.

,,Það er eins og með ástina að það er gott að vera fljótur að gleyma ef eitthvað gerist í einkalífinu. Við ætlum að hafa það þannig í kvöld. Að vera fljótir að gleyma þessu og reyna að skemmta okkur. Þetta hefur verið frábært keppnistímabil, við höfum verið að spila vel og vorum að heyja fjórða leikinn á móti FH og unnið hina þrjá."

,,Það er margt sögulegt sem hefur gerst í leikjum okkar, við höfum haldið hreinu sem var ekki daglegt brauð í Garðabænum, unnið KR í fyrsta skipti og margt," sagði Logi sem hrósaði svo Bjarna Jóhannssyni fyrir gott starf með liðið og sagði liðið skemmta sér í kvöld en minnti á að hóflega drukkið vín gleður mannsins hjarta og vonaði að þannig yrði í kvöld."
Athugasemdir
banner
banner
banner