Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
   mið 30. október 2019 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England í dag - Tveir risaleikir á dagskrá
Christian Pulisic og vinir mæta Manchester United
Christian Pulisic og vinir mæta Manchester United
Mynd: Getty Images
Það kemur í ljós í kvöld hvaða lið mætast í 8-liða úrslitum enska deildabikarsins en þrír leikir eru á dagskrá. Chelsea og Manchester United mætast á meðan Liverpool fær Arsenal í heimsókn.

Það eru tveir risaleikir í deildabikarnum í kvöld. Liverpool mætir Arsenal á Anfield. Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, ætlar að stilla upp nokkrum ungum leikmönnum og er von á því að Unai Emery geri slíkt hið sama.

Chelsea og Manchester United mætast þá klukkan 20:05 á Stamford Bridge en þar mætast gömlu refirnir Ole Gunnar Solskjær og Frank Lampard sem mættust oft á ferlinum með þessum liðum.

Leikir dagsins:
19:30 Liverpool - Arsenal
19:45 Aston Villa - Wolves
20:05 Chelsea - Man Utd
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner