
„Það voru allir mjög ferskir á æfingu í gær og það kom okkur skemmtilega á óvart. Það er mikil einbeiting og allir eru í góðu formi," sagði Helgi Kolviðsson, aðstoðarlandsliðsþjálfari, fyrir landsliðsæfingu í dag.
Ísland mætir Noregi á laugardaginn og Gana á fimmtudaginn í síðustu leikjunum fyrir HM. Helgi segir að hægt sé að nýta þessa leiki til undirbúnings fyrir leikina gegn Argentínu, Nígeríu og Króatíu á HM.
„Við ætlum að undirbúa okkur undir ýmis atriði. Hvort sem það eru föst leikatriði, pressa, hvar þeir standa, hvernig þeir haga sér í uppspili og öðru. Það verða ýmsir leikir í leiknum og gegn Gana sem við erum að tengja við hin liðin og það sem við gerum í Rússlandi. Það er fullt af hlutum sem við ætlum að benda á og þetta er frábær undirbúningur fyrir okkur,"
Helgi segir að margir leikmenn í 23 manna hópnum fái tækifæri í leikjunum tveimur.
„Við rúllum mikið. Þeir sem voru í styttra fríi byrja kannski ekki allir á laugardaginn. Við verðum að rótera og margir spila. Það er alveg á hreinu," sagði Helgi.
Sjá einnig:
Gylfi gæti spilað gegn Noregi
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir