Rúnar Kristinsson var skiljanlega ánægður með endurkomu sinna manna eftir að hafa gert 3-3 jafntefli við FH í stórskemmtilegum leik í Bestu deild karla í kvöld.
Lestu um leikinn: FH 3 - 3 Fram
„Gríðarlega sáttur með ná í stig hérna miðað við hvernig leikurinn var og fyrri hálfleikurinn ömurlega lélegur af okkar hálfu.“
En hver voru skilaboð Rúnars til sinna manna í hálfleik?
„Við þurftum að fara út og berjast. Við þurftum að hafa fyrir hlutunum og sýna að okkur sé sama. Fullt af fólki að koma fylgjast með okkur Frömmurum og sem eru að fylgja okkar hingað og við þurfum að gefa þessu fólki eitthvað til að klappa yfir. Ef það er ekki fallegur fótbolti þá þurfa menn allavega að hlaupa og berjast og sýna að þeir vilji berjast fyrir merkið sitt.“
„Á einhvern ótrúlegan hátt þá náðum við að jafna. Sýnir að ef viljinn er til staðar þá er hægt að gera ýmislegt.“
Fram á næst leik 13. júní út af landsleikjahléi en Rúnari finnst fínt að fá smá pásu núna fyrir liðið.
„Það hentar ágætlega við erum búnir að spila á þriggja, fjögurra og fimm daga fresti. Það er nánast ekkert hægt að æfa þar á milli. Þú ert í endurheimt, þú ert með frídag og þú ert að reyna að vinna í takti við næsta leik. Þú hefur ekki nema einn eða tvo daga í það og nærð aldrei að æfa.“
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.