,,Ég fór eitthvað að rífast við Hauk Pál (Sigurðsson) sem hindraði mig. Hann hindraði mig og féll við það og vildi fá eitthvað fyrir sinn snúð. Mér fannst það eitthvað skrýtið og snéri mér við og fór að rífast við hann og úr urðu handalögmál eða höfuðlögmál eða eitthvað svoleiðis," segir Tryggvi Guðmundsson leikmaður ÍBV um rauða spjaldið sem hann fékk fyrri hálfleik í 1-0 útisigri liðsins gegn Val í kvöld.
,,Ég vil ekki meina að ég hafi skallað hann en höfuð okkar snertust, það er alveg klárt mál en ég fór ekki af krafti til að skalla hann."
,,Ég var einfaldlega að biðja hann um að vera fair og ekki hindra mig og vera allavega ekki að reyna að fá aukaspyrnu fyrir hindrun sem hann framkvæmir. Svona er blessaður boltinn, sitt sýnist væntanlega hverjum um þetta atvik."
Tryggvi er ósáttur við að hafa fengið rauða spjaldið eftir rimmuna við Hauk Pál og hann hefði viljað sleppa án þess að fá spjald.
,,Ég er ekkert alveg saklaus en ég held að hann sé það nú ekki heldur. Ef ég hefði verið Kristinn Jakobsson hefði ég talað við okkur báða og beðið okkur um að róa okkur og látið leikinn halda áfram en Kiddi vildi greinilega meina að ég væri meiri sökudólgur en hann í þessu," sagði Tryggvi þegar Fótbolti.net ræddi við hann á 70. mínútu í leiknum í kvöld.
Hér að ofan má sjá viðtalið i heild sinni.






















