„Þetta var baráttusigur.Við teljum að það eigi ekki mörg lið eftir að leika þetta eftir," sagði Axel Kári Vignisson, leikmaður ÍR, eftir að Breiðholtsliðið sótti þrjú stig til BÍ/Bolungarvíkur í dag.
„Völlurinn var þungur og við fórum bara í þeirra bolta, baráttu og kýlingar. Þetta var samt flott."
Axel skoraði sigurmarkið í leiknum úr vítaspyrnu. Hann var spurður að því hvort dómurinn hafi verið réttur? „Ég veit það ekki. Dómarinn dæmdi og við sættum okkur við það."
Viðtalið við Axel má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.






















