Hörð barátta um Rogers - Juventus vill Alisonn - Olise orðaður við Real
Thelma Karen: Bjóst ekki við svona stóru hlutverki
Álitið - Hver verður skemmtilegastur í viðtölum?
Höskuldur hungraður: Ætlum að svara fyrir síðasta tímabil
Veit ekki hvort Blikarnir fari í rokk og ról
Óli Skúla: Erum með þrjá öfluga miðverði
Sveindís: Komið og horfið á okkur vinna Úkraínu
Fyrirliðinn á leið í sinn fyrsta leik í efstu deild - „Pressan kemur frá sjálfum mér"
Álitið - Hver er huggulegastur?
„Svíafíflið þitt“ - Gæðastjórinn heldur rígnum lifandi
Hólmar Örn: Hefði engu máli skipt hvernig við hefðum æft
Guðrún sendir skýr skilaboð fyrir heimaleikina
Katla: Er alltaf að segja henni að koma og spila með íslenska landsliðinu
Sölvi Geir: Skotmarkið á okkur er stærra og við þurfum að gera meira
Arna Eiríks klár í slaginn: Ekki alveg þessi týpísku meiðsli
Gísli Eyjólfs: Hefði verið rómantík að fá að enda ferlana saman
Spáin kom Sigga á óvart: Eina sem þetta gerir er að henda bensíni á klúbbinn
Haraldur Freyr: Ætlum að ná í sigur í Frostaskjóli
Jói Kalli: Spurning hvort það verði Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn
Ísak nýr fyrirliði FH: Var einn af þeim yngri en orðinn einn sá elsti
Kosinn bestur fyrir mót - „Stoltur og pínu kitl að leikmenn kjósi mann"
banner
   mán 16. maí 2011 23:11
Elvar Geir Magnússon
Skúli Jón: Vorum lengi að sigla þessu heim
„Eftir að þeir skora þá vorum við lengi að sigla þessu heim," segir Skúli Jón Friðgeirsson, varnarmaður KR. Liðið vann 3-1 sigur á nýliðum Þórs í Pepsi-deildinni í kvöld.

KR yfirspilaði Þór í upphafi leiks og var komið í 2-0 snemma. „Við byrjuðum svaka vel en svo einhvern veginn hættum við og drepum ekki almennilega leikinn. Þeir eru bara hörkugóðir og komu til baka," segir Skúli.

Þórsarar börðust vel eftir erfiða byrjun. „Þeir gera það mjög vel. Þeir reyna líka að spila boltanum sem er gott. Það er hundleiðinlegt að spila við lið sem koma hingað og ætla bara að leggja rútunni . Þeir reyna að spila fótbolta og eru bara mjög flottir."

„Það er langt síðan KR hefur byrjað svona vel og við ætlum bara að halda okkar striki." segir Skúli Jón.

Í sjónvarpinu hér að ofan er hægt að horfa á viðtalið við Skúla í heild sinni.

Slapp
banner
banner