Hörð barátta um Rogers - Juventus vill Alisonn - Olise orðaður við Real
Álitið - Hver verður skemmtilegastur í viðtölum?
Höskuldur hungraður: Ætlum að svara fyrir síðasta tímabil
Veit ekki hvort Blikarnir fari í rokk og ról
Óli Skúla: Erum með þrjá öfluga miðverði
Sveindís: Komið og horfið á okkur vinna Úkraínu
Fyrirliðinn á leið í sinn fyrsta leik í efstu deild - „Pressan kemur frá sjálfum mér"
Álitið - Hver er huggulegastur?
„Svíafíflið þitt“ - Gæðastjórinn heldur rígnum lifandi
Hólmar Örn: Hefði engu máli skipt hvernig við hefðum æft
Guðrún sendir skýr skilaboð fyrir heimaleikina
Katla: Er alltaf að segja henni að koma og spila með íslenska landsliðinu
Sölvi Geir: Skotmarkið á okkur er stærra og við þurfum að gera meira
Arna Eiríks klár í slaginn: Ekki alveg þessi týpísku meiðsli
Gísli Eyjólfs: Hefði verið rómantík að fá að enda ferlana saman
Spáin kom Sigga á óvart: Eina sem þetta gerir er að henda bensíni á klúbbinn
Haraldur Freyr: Ætlum að ná í sigur í Frostaskjóli
Jói Kalli: Spurning hvort það verði Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn
Ísak nýr fyrirliði FH: Var einn af þeim yngri en orðinn einn sá elsti
Kosinn bestur fyrir mót - „Stoltur og pínu kitl að leikmenn kjósi mann"
Hemmi segist elska Brazell - „Alltaf eitthvað blaður og bull“
banner
   fös 20. maí 2011 08:32
Hörður Snævar Jónsson
Dylan Jacob MacAllister: Framherjar eru dæmdir af mörkum
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Dylan Jacob Macallister er nýjasti leikmaður Breiðabliks sem liðið krækti í á sunnudaginn.

Dylan er framherji frá Ástralíu en hann gerði samning við félagið út þetta tímabil.

,,Ég er kominn til að spila fótbolta," sagði Dylan í samtali við Fótbolta.net.

,,Ég er kominn til Breiðabliks og er mjög glaður með að vera kominn hingað. Ég kom hingað í gær (fyrradag) og æfði með liðinu. Þetta var góð æfing með fullt af ungum og sprækum og leikmönnum."

Hann gæti þreytt frumraun sína í Kópavoginum á sunnudag er liðið fær Fylki í heimsókn.

,,Ég er spenntur fyrir fyrsta leik á sunnudag og spenntur fyrir því að leggja mig fram og gera vel."

,,Ég spilaði í Ástralíu á síðustu leiktíð og hafði tækifæri að fara til Noregs en þar sem glugginn opnar ekki fyrr en 1. ágúst þá gekk það ekki upp. Gamall liðsfélagi minn frá Íslandi hafði samband við mig og sagði að Breiðablik vantaði framherja. Við ræddum saman og þetta hljómaði spennandi fyrir mig og hér er ég kominn,"
sagði Dylan en hverjir eru styrkleikar hans?

,,Ég vinn boltann í loftinu og held honum uppi svo framliggjandi miðjumenn geti komið framar á völlinn og vonandi komist inn í teig og skorað nokkur mörk."

,,Ég er framherji og framherjar eru dæmdir af mörkum, ég vil skora mörk sem gera mér gott og félaginu líka,"
sagði Dylan að lokum í samtali við Fótbolta.net.

Nánar er rætt við Dylan í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner