Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 07. apríl 2012 23:46
Hafliði Breiðfjörð
UPPBOÐ: Árituð treyja Jamie Carragher
Hæsta boð 92.500,- Uppboðinu lýkur á Páskadag
Treyja Jamie Carragher sem er á uppboði.
Treyja Jamie Carragher sem er á uppboði.
Mynd: Aðsend
Fótboltaáhugakonan Hanna Símonardóttir hefur tekið ákvörðun um að gefa áritaða treyju frá Jamie Carragher varnarmanni Liverpool.

Treyjan er boðin upp hér á Fótbolta.net og allur ágóði rennur til styrktarfélags krabbameinssjúkra barna á Íslandi.

HÆSTA BOÐ Í TREYJUNA: 92.500,- Uppboðinu lýkur á Páskadag

Sendið boð í treyjuna á netfangið [email protected]. Fréttin verður uppfærð með hæsta boði fljótlega eftir að þau berast.

Það var Philly Carragher faðir leikmannsins sem gaf Hönnu treyjuna í haust þegar hún var á ferð í Liverpool.

Hann kynnti þá fyrir henni góðgerðarmálefni sem Jamie sjálfur er með. Á www.jamiecarragher.org sjá sjá myndir af Carrager sem hann er með sölu og rennur allur ágóði til góðgerðarmála fyrir börn í Liverpool og hvaða málefni það eru.

,,Þegar Philly gaf mér treyjuna ásamt mynd, ákvað ég að láta gott af mér leiða með því að selja treyjuna og ánafna allri upphæðinni til styrktarfélags krabbameinssjúkra barna á Íslandi," sagði Hanna við Fótbolta.net.
Athugasemdir
banner
banner
banner