„Alveg hrikalega ánægður, það er ekkert flóknara en það,“ sagði Þórir Guðmundur Áskelsson glaður eftir 2-0 sigur í grannaslagnum við KF í kvöld. „Maður fór fram á baráttu í þessum leik og kannski getum við sagt allt undir hjá okkur til að koma okkur í aðeins upp í efri hlutann á þessari deild sem er þéttur. Ég held að við höfum sent skilaboð að við viljum flytja okkur ofar og vera með í þeirri baráttu, klárlega.“
„Virkilegur vilji hér í dag er að skila þessum stigum.“
Fiskidagurinn Mikli er þessa helgina á Dalvík, er þetta ekki fullkomin byrjun á þeirri hátíð?
„Algjörlega. Þú getur rétt ímyndað þér fiskisúpurölt á morgun, föstudaginn og svo er Fiskidagurinn sjálfur á laugardaginn. Maður getur labbað með höfuðið hátt, mjög ánægður með það og maður fer bara ánægður inn í helgina.“
Nánar er rætt við Þóri í sjónvarpinu hér fyrir ofan






















