,,Þetta er mjög svekkjandi tap. Við reyndum að spila boltanum vel og mér fannst við takast það lengst af í leiknum en við fáum á okkur leiðinleg mörk í fyrri hálfleik og leikurinn einkenndist af því," sagði Kristinn Jóhannes Magnússon fyrirliði Víkings R. eftir 3-1 tap gegn Þór í dag.
Kristinn fékk á sig vítaspyrnu í síðari hálfleik þegar hann tæklaði Svein Elías Jónsson en úr spyrnunni skoruðu Þórsarar þriðja mark sitt.
,,Ég ætlaði að reyna að strauja fyrir sendinguna og svo tjekkar hann. Það er hægt að dæma víti á þetta en það má sleppa því líka."
Víkingur R. er eftir leikinn með 24 stig í sjöunda sætinu og liðið hefur að litlu að keppa í síðustu þremur umferðunum.
,,Við verðum að sýna karakter og klára tímabilið almennilega úr því sem komið er. Við erum ekkert að fara að hætta núna þó að það sé svekkjandi að vera dottnir úr allri baráttu svona snemma."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.




















