Liverpool opið fyrir því að selja Van Dijk - Tveir á óskalista Man Utd - Suzuki til Leeds?
Besta Álitið: Hver kemur heim í glugganum?
Lárus Orri: Var geldur á miðjunni
Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn
Venni: Frábært að geta sett hann inn á
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
banner
   þri 04. september 2012 13:00
Magnús Már Einarsson
Gylfi Þór: Stundum skorar maður og stundum ekki
Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Tottenham, er ánægður með liðsstyrkinn sem félagið krækti í undir lok félagaskiptagluggans. Tottenham fékk markvörðinn Hugo Lloris í sínar raðir í síðustu viku sem og Moussa Dembele og Clint Dempsey.

,,Við bættum nokkrum við og það er frábært," sagði Gylfi Þór við fjölmiðla á æfingu íslenska landsliðsins í dag.

,,Við erum með frábæran hóp og það var gott að fá þennan markmann til viðbótar og síðan Dembele og Dempsey sem eru topp úrvalsdeildarleikmenn. Það eru spennandi tímar framundan og vonandi aðlagast þeir hlutunum sem fyrst til að við getum farið að vinna einhverja leiki."

Gylfi segist ekki vera smeykur við aukna samkeppni um sæti í byrjunarliðinu hjá Tottenham.

,,Ég vissi það alveg þegar ég fór til Tottenham að það yrðu keyptir leikmenn og einhverjir myndu fara. Við viljum hafa allavega tvo leikmenn í hverri stöðu, það er það mikið af leikjum. Við erum í Evrópudeildinni og í nokkrum keppnum á Englandi. Það er jákvætt að það séu góðir leikmenn að koma."

Tottenham er með tvö stig eftir þrjár umferðir í ensku úrvalsdeildinni en Gylfi hefði sjálfur viljað komast á blað í þessum leikjum.

,,Ég hefði auðvitað viljað skora í fyrstu leikjunum en svona er þetta. Þetta kemur í hrunum, stundum skorar maður og stundum ekki. Við hefðum átt að vinna þessa tvo heimaleiki sérstaklega en svona er þetta. Við verðum að halda áfram, hafa trú á þjálfaranum og okkur sjálfum og þá kemur þetta," sagði Gylfi.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner
banner