,,Ég hef séð síðustu þrjá leiki Íslands og ég veit styrk og veikleika þeirra. Þetta er líklega besta lið Íslands frá upphafi," sagði Egil ,,Drillo" Olsen landsliðsþjálfari Noregs við íslenska fjölmiðla í dag.
,,Ef við spilum eins og við getum best þá held ég að við munum vinna Ísland."
Leikurinn annað kvöld er fyrsti leikurinn í undankeppni HM 2014 í Brasilíu og Drillo er bjartsýnn á að Norðmenn komist áfram á það mót.
,,Ég vona að við förum áfram. Ég veit að Svisslendingar hafa bætt sig mikið síðustu ár og þetta verður erfitt. Ég er nokkuð viss um að Ísland mun taka mörg stig en þeir munu ekki fara til Brasilíu."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.




















