
EM-Innkastið er hljóðvarpsþáttur sem Fótbolti.net sendir út frá Frakklandi á meðan EM er í gangi. Þátturinn er nær daglega á meðan Ísland er með á mótinu.
Ísland lagði þjóðina sem fann upp fótboltann, Englendinga, í 16-liða úrslitum EM í Nice í kvöld.
Rosaleg stund í íþróttasögu Íslands og í raun erfitt að koma henni í orð.
Elvar Geir Magnusson, Magnús Már Einarsson og Haukur Harðarson fóru yfir leikinn í rútunni á leið frá leikvanginum, Hreiðrinu í Nice.
Frammistaða leikmanna var skoðuð og fálkaorður komu í umræðuna.
EM-Innkastið:
1. þáttur: Læti í Frakklandi
2. þáttur: Messi betri en Ronaldo
3. þáttur: Næturrúta eftir svakalegan leik
4. þáttur: Ronaldo landkynning fyrir Ísland
5. þáttur: Svekktir eftir 1-1 tap
6. þáttur: Hvar á stjarnan að spila?
7. þáttur: Fólkið í stúkunni öflugra en liðið
8. þáttur: Sigurvíma í París
9. þáttur: Enska pressan mætt í fjallabæinn
10. þáttur: Gerist eitthvað stórt í Nice?
Athugasemdir