Miðvörðurinn Halldór Kristinn Halldórsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna, 29 ára. Þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net.
„Fjölskyldan þarf að vera í forgangi. Hún hefur verið of aftarlega of lengi í forgangsröðinni," segir Halldór sem var spilandi aðstoðarþjálfari hjá Leikni í Breiðholti á liðnu sumri.
„Fjölskyldan þarf að vera í forgangi. Hún hefur verið of aftarlega of lengi í forgangsröðinni," segir Halldór sem var spilandi aðstoðarþjálfari hjá Leikni í Breiðholti á liðnu sumri.
Halldór er uppalinn Leiknismaður og hefur leikið 198 leiki fyrir Leikni í öllum deildum. Hann spilaði fyrsta leikinn fyrir meistaraflokk árið 2003.
Hann lék einnig með Val og Keflavík í efstu deild en alls var hann tíu tímabil hjá Leikni.
„Þessi listamaður er að ganga inn í sólsetrið eftir glæstan feril. Við Leiknismenn höfum misst marga sterka karaktera á undanförnum árum en eins og segir í laginu: Bjart í Breiðholti," skrifar Magnús Sigurjón Guðmundsson stuðningsmaður Leiknis á stuðningsmannasíðu félagsins á Facebook.
Leiknir hafnaði í fimmta sæti í Inkasso-deildinni í sumar.
Dóri er að leggja skónna á hilluna. 198 leikir fyrir Leikni, 9 mörk og 86 spjöld. Gengur inn í sólsetrið #TakkDóri #FotboltiNet pic.twitter.com/DPZFQ43Jw2
— Maggi Peran (@maggiperan) October 10, 2017
Athugasemdir