Heil umferð fór fram í Inkasso-deild karla í gærkvöldi þegar fyrri umferðin kláraðist.
Fjögur jafntefli litu dagsins ljós í umferðinni og þá náðu Njarðvíkingar loksins í sigur eftir sjö töp í röð í deild og bikar. Rafn Markús Vilbergsson þjálfari liðsins er þjálfari umferðarinnar eftir 3-0 sigur á Víkingi Ólafsvík.
Fjögur jafntefli litu dagsins ljós í umferðinni og þá náðu Njarðvíkingar loksins í sigur eftir sjö töp í röð í deild og bikar. Rafn Markús Vilbergsson þjálfari liðsins er þjálfari umferðarinnar eftir 3-0 sigur á Víkingi Ólafsvík.
Sóknarlínan kemur einmitt úr liði Njarðvíkur þar sem Kenneth Hogg, Ivan Prskalo og Hilmar McShane eru allir í liði umferðarinnar.
Arnar Darri Pétursson er í markinu en Þróttur gerði 1-1 jafntefli gegn Aftureldingu þar sem Arnar Darri fór á kostum. Í liði Mosfellinga var Jason Daði Svanþórsson manna bestur.
Rúnar Þór Sigurgeirsson er í liði umferðarinnar í fjórða sinn í sumar en hann hefur verið að glíma við meiðsli en er kominn aftur á ról. Keflavík náði í 1-1 jafntefli gegn toppliði Fjölnis með jöfnunarmarki í uppbótartíma.
Þá gerðu Haukar og Grótta 2-2 jafntefli á Ásvöllum. Aron Freyr Róbertsson var bestur Haukamanna og hjá Gróttu er Axel Freyr Harðarson fulltrúi liðsins í liði umferðarinnar.
Magni var ekki langt frá því að sækja í öll þrjú stigin í nágrannaslag Magna og Þórs í gærkvöldi. Ívar Sigurbjörnsson og Sveinn Óli Birgisson stóðu vaktina vel í vörn liðsins en Jóhann Helgi Hannesson jafnaði fyrir Þór á loka mínútunum.
Helgi Guðjónsson er á miðjunni en hann var besti leikmaður vallarsins í sigri Fram á Leikni R. 2-1 í Safamýrinni.
Sjá fyrri lið umferðarinnar:
Lið 10. umferðar
Lið 9. umferðar
Lið 8. umferðar
Lið 7. umferðar
Lið 6. umferðar
Lið 5. umferðar
Lið 4. umferðar
Lið 3. umferðar
Lið 2. umferðar
Lið 1. umferðar



