Paris Saint-Germain byrjaði vel í kvöld í frönsku úrvalsdeildinni þegar liðið vann 3-0 sigur gegn Nimes.
Edinson Cavani, Kylian Mbappe og Angel Di Maria skoruðu mörkin fyrir frönsku meistarana.
Neymar kom til PSG frá Barcelona árið 2017 fyrir 222 milljónir evra en hann er orðinn þreyttur á lífinu í Frakklandi og vill komast burt.
Hann hefur verið orðaður bæði við endurkomu til Barcelona og við erkifjendur þeirra í Real Madrid.
Neymar var ekki með PSG í kvöld, en hann virðist ekki vera vinsæll hjá stuðningsmönnum Parísarliðsins.
„Neymar, tíkarsonur," söng hópur stuðningsmanna PSG er lið þeirra vann 3-0.
PSG fans chant "Neymar, you son of a bitch" 👀 pic.twitter.com/eoHb3VhGWf
— Transfer News (@TrustyTransfers) August 11, 2019
Athugasemdir