Kylian Mbappe er einn af bestu knattspyrnumönnum heims um þessar mundir, þrátt fyrir að vera aðeins 21 árs gamall. Hann er þekktur fyrir gríðarlega mikinn hraða, frábæra tækni og góða markaskorun.
Hann skoraði tvö og lagði eitt upp í 4-0 sigri PSG gegn Rúnari Alexi Rúnarssyni og félögum í Dijon í gær. Bragð sem hann notaði til að klobba andstæðing sinn í leiknum vakti sérstaklega mikla athygli og má sjá hér fyrir neðan.
Mbappe er markahæstur í frönsku deildinni, með átján mörk og fimm stoðsendingar í tuttugu leikjum.
Fyrir neðan myndbandið af Mbappe má sjá Nicolas Pepe, kantmann Arsenal, leika listir sínar gegn Olympiakos í Evrópudeildinni.
Pepe náði að leika á sama varnarmanninn fimm sinnum, án þess að komast endanlega framhjá honum. Arsenal tapaði óvænt á heimavelli og var slegið úr leik.
This is my impression of #PEPE so far. All dangle no end product.pic.twitter.com/2xGtofrIXA
— jordanxcollins (@jordyxcollins) February 29, 2020
Athugasemdir