Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 01. júlí 2022 11:30
Elvar Geir Magnússon
Flækir málin fyrir Man Utd að Malacia skiptir um umboðsmann
Tyrell Malacia.
Tyrell Malacia.
Mynd: EPA
Flækjustigið í vinnu Manchester United við að kaupa bakvörðinn Tyrell Malacia frá Feyenoord hefur aukist eftir að leikmaðurinn ákvað að skipta um umboðsmann.

United hefur komist að samkomulagi við Feyenoord um 13 milljóna punda kaupverð en á eftir að semja við vinstri bakvörðinn sjálfan.

HCM Sports Management hefur hingað til séð um málin fyrir Malacia en sama umboðsskrifstofa er með Frenkie de Jong sem United vill kaupa frá Barcelona.

Þrátt fyrir að það muni ekki ganga eins smurt fyrir sig fyrir United að klófesta hinn 22 ára gamla Malacia þá eru forráðamenn félagsins bjartsýnir á að kaupin gangi á endanum í gegn. BBC segir allt stefna í að Malacia verði kynntur sem leikmaður United á næstu dögum.

United er einnig orðað við Lisandro Martínez, varnarmann Ajax.
Athugasemdir
banner
banner