Þetta hefur ekki verið mikið lukku tímabil hjá Real Madrid sem er þó enn lifandi í spænsku deildinni og Meistaradeildinni.
Tímabilið hefur einkennst af miklum meiðslum og geta þeir hvítklæddu þakkað Karim Benzema fyrir að stíga upp og taka leik sinn á næsta stig en Frakkinn er búinn að skora 23 mörk í 32 leikjum það sem af er tímabils.
Benzema hefur skorað 17 af 49 mörkum Real Madrid í spænsku deildinni en það vekur athygli að leikmenn liðsins hafa oftar orðið fyrir meiðslum, eða 50 sinnum.
Eden Hazard er verstur af meiðslapésunum í Madríd og hefur meiðst fimm sinnum á leiktíðinni.
Athugasemdir