Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 02. apríl 2021 06:00
Victor Pálsson
Martinez einn sá besti að mati Pochettino
Mynd: Getty Images
Lautaro Martinez, leikmaður Inter Milan, er einn besti framherji heims í dag að mati Mauricio Pochettino.

Pochettino er núverandi stjóri Paris Saint-Germain en hann hefur séð Martinez spila glimrandi vel með Inter á leiktíðinni.

Mörg stórlið eru á eftir þessum 22 ára gamla leikmanni sem hefur skorað 16 mörk á þessari leiktíð í 37 leikjum.

„Lautaro Martinez er einn besti framherji heims," sagði Pochettino.

„Það er ekki bara hvað hann gerir núna heldur það sem hann getur gert í framtíðinni."

„Ef þú ert stórlið að horfa í kringum þig þá geturðu ekki horft framhjá nafninu hans."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner