Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 02. apríl 2023 10:00
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu hræðileg mistök Kobel í gær - „Þetta var bara ömurlegur dagur"
Mynd: EPA
Svissneski markvörðurinn Gregor Kobel átti ömurlegan dag eins og margir aðrir liðsfélagar hans í Borussia Dortmund er liðið tapaði fyrir Bayern München, 4-2, í titilbaráttuslag.

Kobel átti stærstu mistök leiksins og komu þau eftir aðeins þrettán mínútur.

Dayot Upamecano tók langan bolta fram völlinn og var það Leroy Sane sem tók hlaupið. Kobel mætti því á móti og ætlaði að þruma boltanum fram en hitti boltann illa sem varð til þess að boltinn endaði í netinu.

Dortmund fann ekki taktinn eftir markið og fékk þrjú á sig til viðbótar.

„Þetta var bara ömurlegur dagur,“ sagði Kobel við fjölmiðla eftir leikinn og hefur hann ekki rangt fyrir sér þar, en atvikið má sjá hér fyrir neðan.

Sjáðu sjálfsmarkið hér


Athugasemdir
banner
banner
banner