Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 05. janúar 2022 17:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kvennalandsliðið tekur þátt í SheBelieves Cup í febrúar
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska kvennalandsliðið mun taka þátt í gífurlega sterku æfingamóti í febrúar. Mótið heitir SheBelieves Cup og fer það fram í Bandaríkjunum.

Bandaríkin unnu mótið í fyrra og þá voru önnur lið mótsins Kanada, Argentína og Brasilía.

Af KSÍ.is:
Auk Íslands taka landslið Bandaríkjanna, Nýja-Sjálands og Tékklands þátt. Keppnisfyrirkomulagið er einföld umferð þar sem öll liðin mætast einu sinni og eru leikdagarnir 17., 20. og 23. febrúar.

Tveir leikir fara fram í Los Angeles og einn í Dallas. Leikirnir í Los Angeles fara fram á Dignity Health Sports Park, en þar leikur LA Galaxy leiki sína. Í Dallas fara leikirnir fram á Toyota Stadium þar sem FC Dallas leikur sína heimaleiki í MLS deildinni.

SheBelieves Cup er boðsmót fyrir A landslið kvenna á vegum Knattspyrnusambands Bandaríkjanna. Mótið hefur verið haldið árlega síðan 2016 og þar hafa tekið þátt mörg af sterkustu landsliðum heims.

Eins og knattspyrnuáhugafólki er kunnugt um eru Ísland og Tékkland saman í riðli í undankeppni HM 2023 og hafa þau þegar mæst í Reykjavík þar sem Ísland vann 4-0 sigur. Bandaríska liðið er sem fyrr eitt af sterkustu landsliðum heims og lið Nýja-Sjálands verður annar af gestgjöfunum í úrslitakeppni HM 2023 sem fer fram þar í landi og í Ástralíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner