Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 05. október 2020 22:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Garcia lætur vita að hann fer til Barcelona á endanum
Eric Garcia.
Eric Garcia.
Mynd: Getty Images
Eric Garcia gekk í raðir Barcelona í dag. Manchester City vildi fá 20 milljónir evra fyrir miðvörðinn en Börsungar voru ekki tilbúnir að greiða það.

Garcia, sem er 19 ára gamall, vill fara til Barcelona. Hann er uppalinn hjá félaginu, en hann gekk í raðir Man City fyrir tveimur árum síðan.

Samningur hans hjá Man City rennur út næsta sumar og samkvæmt ítalska fjölmiðlamanninum Fabrizio Romano þá er hann búinn að láta City vita að hann muni fara á endanum til Barcelona, hvort sem það verði í janúar eða næsta sumar.

Garica vill ekki skrifa undir nýjan samning hjá Man City og það er bara tímaspursmál hvenær hann fer.


Athugasemdir
banner
banner
banner